- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Á fundi sveitarstjórnar í morgun var lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur fyrir árið 2025. Þetta er síðast ársreikningur núverandi sveitarstjórnar og endurspeglar þann mikla árangur sem sveitarstjórnin hefur náð á kjörtímabilinu. Mikil samstaða hefur verið í sveitarstjórninni um verkefnin sem unnið hefur verið að og þær miklu fjárfestingar sem hafa átt sér stað síðustu fjögur ár. Ársreikningurinn staðfestir frábæran árangur og sterka fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins.
Fjórða árið í röð skilum við met rekstrarafkomu, en rekstrarafgangur A+B hluta er jákvæður um 181 milljónir, þar af A hluti 178 milljónir. Aldrei áður hefur verið fjárfest jafn mikið í innviðum sveitarfélagsins, en fjárfestingar ársins 2025 voru 847 milljónir. Það sem af er kjörtímabilinu eru við búin að fjárfesta fyrir rúmlega 1,3 milljarða og með samþykktri fjárhagsáætlun ársins 2026 eru fjárfestingar sem núverandi sveitarstjórn hefur unnið að á þessu kjörtímabili um 2 milljarðar. Það er virkilega ánægjulegt að geta náð slíkum árangri fyrir ekki fjölmennara sveitarfélag, en í dag búa 686 íbúar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, rúmlega 100 fleiri en fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir þessar gríðarlega miklu fjárfestingar, þá er skuldaviðmið A+B hluta einungis 45%, en lögbundið hámark er 150%. Það er því óhætt að segja að framtíðin er björt og með sama árangri getum haldið áfram að fjárfesta af miklum krafti í uppbyggingu í sveitarfélaginu ásamt því að veita góða þjónustu til íbúa.
Það er einnig gleðilegt að segja frá því að á sveitarstjórnarfundinum í morgun samþykkti sveitarstjórn framkvæmdaleyfi til byggingar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá. Í síðustu viku samþykkti Rangárþing Ytra framkvæmdaleyfið og eru því öll leyfi komin í hús til þess að Vegagerðin geti hafið framkvæmdir við þessar miklu samgöngubót sem Búðafossvegur er.
Það er óhætt að segja að sumarið taki vel á móti okkur með eindóma veðurblíðu og vil ég óska öllum gleðilegs sumar.
Haraldur Þór Jónsson, oddviti