Nýr forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Hulda Kristjánsdóttir formaður stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings ásamt nýráðnum forstö…
Hulda Kristjánsdóttir formaður stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings ásamt nýráðnum forstöðumanni, Halli Símonarsyni.

Gengið hefur verið frá ráðningu nýs forstöðumanns við Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. Um er að ræða nýja stöðu en ráðningin er tímabundin til eins árs.

Nýr forstöðumaður er Hallur Símonarson. Hallur býr í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hann er með BS í viðskiptafræði og hefur einnig verið við meistaranám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands. Hallur hóf störf í dag, mánudaginn 20. apríl.

Hallur starfaði sem innri endurskoðandi hjá Reykjavíkurborg í mörg ár og hefur góða þekkingu á stjórnsýslu, rekstri, stjórnun og ráðgjöf.

Deildarstjórar á skóla- og velferðarsviði sinna áfram verkefnum sínum sem faglegir stjórnendur og starfsmenn á sviði skóla- og velferðarmála en Hallur tekur ýmis stjórnunartengd verkefni svo sem stefnumótun fyrir þjónustuna, verkefnastýringu, innleiðingu verkferla og skjalavistunar, daglegan rekstur, stjórnun, starfsmannamál og samskipti við stjórn svo eitthvað sé nefnt.

Við búum að öflugum mannauði í byggðasamlaginu og mun Hallur koma inn sem góð viðbót við þann mannauð sem fyrir er.

Á myndinni er nýr forstöðumaður, Hallur Símonarson, ásamt Huldu Kristjánsdóttur formanni stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.