Lífshlaupið 2019 hófst 6. febrúar! Allir með!

Hitað upp fyrir hlaup
Hitað upp fyrir hlaup

Við hjá Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands ( ÍSÍ) viljum vekja athygli ykkar á að skráning er hafin í Lífshlaupið, heilsu og hvatningarverkefni sem ræst verður í 12. sinn miðvikudaginn 6. febrúar næstkomandi.

Við sem höldum utan um þetta frábæra verkefnihjá ÍSÍ langar að biðja ykkur að hvetja ykkar íbúa til að taka þátt og vera með? Væri gaman ef hægt væri að deila þessum skemmtilega viðburði á viðeigandi heimasíðum og samfélagsmiðlum.

 

Lífshlaupið er ótrúlega skemmtilegur og góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða hreyfa sig nú þegar reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sína á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur. Fullorðnir að lámarki 30 mínútur á dag og börn og unglingar að lámarki 60 mínútur á dag.

 

Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um Lífshlaupið.

 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2019 hefst 6febrúar.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 6febrúar – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 6febrúar – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 6febrúar – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávalt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finn hér https://lifshlaupid.is/keppnir/ og undir viðeignadi keppni vinstra megin. Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Einnig er auðvelt að ná í hreyfinguna sína úr Strava og Runkeeper fyrir þá sem það nota.

Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í kringum ykkur til þátttöku. Við hvetjum ykkur einnig til þess að segja frá Lífshlaupinu á ykkar heimasíðu ogsamfélagsmiðlum.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is eða í síma: 514-4000.

 

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á www.lifshlaupid.is