Leitum að umsjónaraðila með vinnuskóla

Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir aðila til að fara með umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins og önnur tilfallandi verkefni. Ráðningartími er frá og með 1 júní til og með 20. ágúst 2023. Vinnuskólinn er starfræktur fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu á aldrinum 14 og 15 ára. Starfstími vinnuskólans er frá 5 júní til og með 3 ágúst.

 

Ábyrgðarsvið:

  • Umsjón og verkstjórn í vinnuskóla ungmenna. Umsjónarmaður vinnuskóla leiðbeinir og samræmir vinnu ungmenna/sumarstarfsmanna í vinnuskóla sveitarfélagsins allt í samræmi við þau verkefni sem eru honum falin samkvæmt ákvörðunum sveitarstjóra og fjárheimildum.
  • Starfsmaður verkstýrir ungmennum/sumarstarfsmönnum í sumarstarfi. Fer starfið fram að mestu utandyra.
  • Starfsmaður ber ábyrgð á að farið sé eftir viðeigandi reglum um öryggi á vinnustað. Hann sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum enda samræmist þau verksviði hans.
  • Umsjónaraðili skal sýna fordæmi og vera góð fyrirmynd í lífi og starfi ungmenna sumarskólans.
  • Tilfallandi verkefni í áhaldahúsi og á sorpgámasvæði.
  • Um er að ræða vinnu við garðyrkjustörf og hreinsun umhverfisins í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og önnur tilfallandi létt verkefni sem stuðla að því að fegra og bæta umhverfið.

 

Helstu verkefni

  • Skipulagning vinnuskóla
  • Almenn umhirða lóða og umhverfis við stofnanir sveitarfélaga, s.s. hreinsun lóða, sláttur, málningarvinna og önnur tilfallandi verkefni
  • Halda utan um vinnuskýrslur fyrir ungmennin.
  • Gerð áhættumats
  • Huga að velferð ungmennanna og leiðbeina þeim um rétta líkamsbeitingu

Hæfniskröfur:

  • Hæfni til leiðbeiningar
  • Lipurð í samskiptum
  • Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á starfsemi sveitarfélaga er kostur
  • Þekking á landareignum, mannvirkjum og starfsemi Skeiða- og Gnúpverjahrepps
  • Samstarfshæfni og samstarfsvilji
  • Þagnarheit og virðing fyrir því
  • Temur sér rétta líkamsbeitingu
  • Almenn ökuréttindi
  • Hreint sakarvottorð
  • Þekking á meðferð og umhirðu verkfæra og áhalda
  • Almenn tölvuþekking
  • Skyndihjálp.
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Geta til að taka leiðbeiningum og gagnrýni
  • Lipurð í almennum samskiptum
  • Þekking á reglum um öryggi á vinnustöðum
  • Þekking á boðskiptaleiðum og helstu viðbrögðum við slysum og áföllum
  • Þekking á helstu atriðum barnaverndarlaga og tilkynningarferli vegna barnaverndarmála
  • Þekking á samþykktum og reglum Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
  • Ökuréttindi BE sem veitir réttindi til að stjórna ökutæki með kerru allt að 3.500 kg

Laun greidd samkvæmt kjarasamningum FOSS. Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri, Haraldur Þór Jónsson í síma 486-6100.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsókn þarf að berast í síðasta lagi 15. mars 2023 á netfangið haraldur@skeidgnup.is