Leikskólinn Leikholt leitar að leikskólakennara í 50% starf

Svipmynd úr starfi Leikholts
Svipmynd úr starfi Leikholts

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi áskilin.
  • Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
  • Góðir skipulagshæfileikar og stundvísi.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Meginverkefni:

  • Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.

Leikskólinn Leikholt er í tímabundnu húsnæði að Blesastöðum en stefnir á að flytja í vor aftur í Brautarholt. Í Leikholti eru 37 börn á aldrinum 1 árs til 6 ára. Í Leikholti vinna 15 metnaðarfullir og faglegir starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi. Við leggjum áherslu á félagsfærni þjálfun, mikla málörvun og læsi og kennslu í gegnum leikinn. Einnig erum við þátttakendur í vináttuverkefninu Blær sem er forvarnarverkefni gegn einelti. Einkunnarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing.

Frekari upplýsingar veitir Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri sími 895-2995 og áhugasamir geta sent umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið leikholt@leikholt.is.

 Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar öllum óháð kyni og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2021 og æskilegt er að viðkomandi geta hafið störf sem fyrst.