Leikskólakennara í 60% stöðu vantar í Leikholt 29. janúar.

Leikskólinn Leikholt
Leikskólinn Leikholt

Leikskólinn Leikholt óskar eftir að ráða leikskólakennara í 60% stöðu með möguleika á breyttu starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf  29. janúar 2018 eða eftir samkomulagi.  Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum. Staðan er inn á yngri deildinni Heklu (1 árs til 2ja ára).

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi áskilin.
  • Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
  • Góðir skipulagshæfileikar og sveigjanleiki.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Meginverkefni:

  • Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.

Leikskólinn Leikholt er Grænfána leikskóli þar vinna 13 starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi, við leggjum áherslu á mikla málörvun og læsi og kennslu í gegnum leikinn ásamt ART þjálfun og vináttuverkefnið Blær. Einkunnarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing.

Frekari upplýsingar veitir Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri sími 486-5586/895-2995 og áhugasamir geta sent umsókn ásamt ferilskrá á netfangið leikholt@leikholt.is.

Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2018.