Laust starf í Leikholti

Auglýsing eftir starfsmanni í eldhús/ræstingar

Leikskólinn Leikholt auglýsir eftir starfskrafti í eldhús/ræstingar. Um er að ræða 90% starf með vinnutímann 9:00-16:00 (eða 10:00-14:00 og svo þrif eftir lokun), þar sem tekið er á móti matnum sem kemur frá Árnesi, framreitt og gengið frá, einnig er húsið ræst. Laun samkvæmt kjarasamningum. Starfsmaður þarf að geta byrjað að vinna frá og með 3. janúar  2022.

Leikskólinn Leikholt er Grænfána leikskóli og hugsar því vel um umhverfið, varðandi flokkun, rafmagn, efni til þrifa og fleira. Í Leikholti vinna 12 starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi, við leggjum áherslu á mikla málörvun,  og læsi og kennslu í gegnum leikinn. Einkunarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing. Hægt er að senda ferliskrá á leikholt@leikholt.is eða hringja í 486-5586 eða 895-2995 og tala við leikskólastjórann, einnig til að fá nánari upplýsingar.

Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri.