Laus störf við Flúðaskóla

Í Gjánni í Þjórsárdal
Í Gjánni í Þjórsárdal

Í Flúðaskóla eru um 100 nemendur í 1. – 10. bekk. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, ábyrgð nemenda og góða samvinnu við alla sem að skólastarfinu koma. Eftirfarandi kennarastöður eru lausar til umsóknar: Tónmenntakennari

Starfshlutfall 40 % ótímabundin ráðning, tónmennt í 1. – 5. bekk og kór.

Íþróttakennari

Starfshlutfall 60 % tímabundin ráðning skólaárið 2017 – 2018

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Vera opinn fyrir nýjungum í skólastarfi

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknarfrestur er til 22. maí 2017.

Umsóknir skal senda á netfangið gudrunp@fludaskoli.is

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Pétursdóttir skólastjóri í síma 4806611 eða í tölvupósti