Laus störf í Þjórsárskóla

Þjórsárskóli
Þjórsárskóli

Í Þjórsárskóla eru eftirfarandi stöður lausar:

  • Umsjónarkennari í 3.-4. bekk, ásamt kennslu í heimilisfræði
  • Sérkennari 70% staða. Reynsla af kennslu á grunnskólastigi. Æskileg þekking á greiningum og hegðunarerfiðleikum barna og reynslu af ráðgjöf við foreldra barna.
  • Íþróttir (ekki sund) í 1.-7. bekk, ART og útinám.
  • Skólaliði í skólavistun og umsjón með morgunmat. Um er að ræða 85% stöðu.
  • Stuðningsfulltrúi, um er að ræða 75% stöðu.

Umsóknafrestur er til 5.maí 2022

Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660 netfang: bolette@thjorsarskoli.is

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð  áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og  umhverfið. Við leggjum áherslu á að nýta það efni sem við fáum úr Þjórsárdalsskógi og að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Yfir markmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.

Vefslóð www.thjorsarskoli.is

Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi búa 600 manns. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.