Laus lóð í Árnesi - Heiðargerði 1

Árnes úr lofti
Árnes úr lofti

Heiðargerði 1: Lóðin er 1792 m2 að stærð og er skipulögð fyrir raðhús með 3 íbúðum.

Í skilmálum deiliskipulags svæðisins segir: Heimilt er að byggja íbúðarhús á einni hæð ásamt bílskúr, húsagerð er frjáls. Mænishæð má vera allt að 5 m mælt frá gólfplötu í mæni.

Deiliskipulag Árneshverfis má finna hér

Gjaldskrá gatnagerðagjalda má finna hér

Umsóknir skulu vera skriflega og berast á skrifstofu Skeiða og Gnúpverjahrepps á þar til gerðu eyðublaði sem má finna hér Umsóknarfrestur er til 20. júní 2023.

Frekari reglur um úthlutun lóða í Skeiða og Gnúpverjahrepp, kröfur til umsækjenda ofl. Má finna hér.