Íbúafundur vegna Hvammsvirkjunnar

Kornakur
Kornakur

Haldinn verður íbúafundur í félagsheimilinu Árnesi þriðjudaginn 8. mars kl 20 á vegum Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á fundinum mun Landsvirkjun kynna starfsemi sína á Þjórsársvæði og áform um Hvammsvirkjun. 

Á fundinum verða fulltrúar frá Landsvirkjun og sveitarfélaginu Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Fundarstjóri verður Sigurður Loftsson.

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta sent inn spurningar varðandi virkjunina, framkvæmd hennar og annað sem brennur á fólki, inn á netfangið
skrifstofa@skeidgnup.is fyrir miðvikudaginn 2. mars.