Grunnskólakennari í Þjórsárskóla óskast

Þjórsárskóli er grænfánaskóli
Þjórsárskóli er grænfánaskóli

Laus staða kennara í  Þjórsárskóla. Kennt er í litlum hópum yngri sér ( 1.-4.) og eldri sér ( 5.-7.). Við leggjum upp úr sjálfbærni, að nýta það efni sem við fáum í Þjórsárdalsskógi og einnig  að gefa gömlum hlutum nýtt líf.

Kennslugreinar eru íþróttir og smíði.

Gerð er krafa um grunnskólakennaramenntun og lipurð

í mannlegum samskiptum. Allt að 70 % staða frá 1 ágúst nk.

 Umsóknarfrestur til 9 júní 2017.

 Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð  áhersla á nýsköpun, útikennslu og  umhverfið. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.

Vefslóð www.thjorsarskoli.is

Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er 610 íbúar. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.