Grunnskólakennarar óskast í Þjórsárskóla

Grunnskólakennarar í Þjórsárskóla

Lausar eru 2,5 stöður kennara í  Þjórsárskóla. Tvær 100% og ein 50%

 

Umsjónarkennsla á yngri stigi. Kennslugreinar eru stærðfræði, náttúrufræði, samfélagsfræði, ART, heimilsfræði, enska og íþróttir í 1.-7. bekk ( ekki sund), útinám, textíl í 1.-7. og Íslenska á miðstigi.

 

 Umsóknarfrestur til 22. apríl 2021.

 Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð  áhersla á sjálfbærni,nýsköpun, útikennslu og  umhverfið. Við leggjum áherslu á að nýta það efni sem við fáum

úr Þjórsárdalsskógi og að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.

Vefslóð www.thjorsarskoli.is

Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi búa 600 manns. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.