Grunnskólakennara í Þjórsárskóla vantar

Þjórsárskóli er grænfánaskóli
Þjórsárskóli er grænfánaskóli

Laus er staða umsjónarkennara í 3.- 4. bekk í Þjórsárskóla. Kennt er í litlum hópum yngri sér ( 1.-4.) og eldri sér ( 5.-7.). Við leggjum upp úr sjálfbærni, að nýta það efni sem við fáum í Þjórsárdalsskógi og einnig  að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Aðal kennslugreinar fyrir utan umsjónarkennslu eru stærðfræði og náttúru/samfélagsfærði 1-4 bekk, reynsla er æskileg. Gerð er krafa um grunnskólakennaramenntun og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla á yngsta og miðstigi æskileg. 100 % staða frá 1 ágúst nk.

Einnig er óskað eftir  kennara í 60 % stöðu í kennslu 1-4 bekk.

 Umsóknarfrestur til 28 apríl 2017.

 Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð  áhersla á nýsköpun, útikennslu og  umhverfið. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.

Vefslóð www.thjorsarskoli.is

Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er 611 íbúar. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.