Götum lokað fyrir kassabílarallý

Kort af helstu lokunum og viðburðum í Árnesi laugardaginn 14.júní
Kort af helstu lokunum og viðburðum í Árnesi laugardaginn 14.júní

Seinnipart föstudagsins 13. júní verður Skólabrautinni í Árnesi, og brautinni austan við Félagsheimilið Árnes lokað vegna uppsetningar Kassabílarallýbrauta. Göturnar tvær eru því lokaðar frá ca. kl. 13.00 föstuaginn 13. og fram til kl. 16.00 laugardaginn 14. júní.

Hægt er að sjá svæðin tvö sem eru lokuð á meðfylgjandi mynd.