Fyrsta skóflustungan við nýtt verknámshús

Bolette og Guðmundur tóku fyrstu skóflustunguna að verknámshúsinu
Bolette og Guðmundur tóku fyrstu skóflustunguna að verknámshúsinu

Hinn 4. júní sl. tóku Bolette H. Koch fráfarandi skólastjóri Þjórsárskóla og Guðmundur Finnbogason, nýráðinn skólastjóri Þjórsárskóla, skóflustungu að verknámshúsi sem rísa mun í sumar á lóð Þjórsárskóla í Árnesi.

Um er að ræða 200 m2 verknámshús sem mun hýsa þrjár kennslustofur sem ætlaðar eru til kennslu í heimilisfræði, smíðakennslu og myndlistar- og textíl kennslu.

Húsið er framleitt af Límtré Vírnet og er stefnt að því að húsnæðið verði klárt til kennslu þegar nemendur skólans mæta aftur til náms haustið 2025. Má segja að húsið sé kærkomin viðbót við húsnæði Þjórsárskóla og þær breytingar sem hafa staðið yfir á sjálfu skólahúsnæðinu.

 

Verknámshúsið