Fundur um þjóðgarð á hálendinu 27. ágúst í Árnesi kl.18:00

Kjálkaversfoss í Þjórsá
Kjálkaversfoss í Þjórsá

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til fundar um þjóðgarð á miðhálendi Íslands í Félagsheimilinu Árnesi, mánudaginn 27. ágúst. kl 18:00.
Formaður miðhálendisnefndar Óli Halldórsson kynnir verkefni nefndarinnar og fer yfir tímarás verkefnisins. Að framsögu hans lokinni mun hann leitast við að svara fyrirspurnum.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.