Fréttabréf Skeiða- og Gnúpverjahrepps – útgáfa.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir aðila til að taka að sér útgáfu fréttabréfs fyrir sveitarfélagið.

Fréttabréfið er gefið út einu sinni í mánuði að júlí undanskildum og er því ætlað að miðla upplýsingum til íbúa sveitarfélagsins og annarra um þjónustu, fréttir og helstu viðburði í sveitarfélaginu. Fréttabréfinu er dreift án endurgjalds á öll heimili í sveitarfélaginu. Upplag 300-350 eintök. Áskrft er seld til íbúa utan sveitarfélagsins. Birting er á heimsíðu sveitarfélagsins. 

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri. Sími 486-6100 netfang kristofer@skeidgnup.is. Á það netfang sendist umsóknir eigi síðar en 30. desember næstkomandi. 

Æskilegt er að umsóknum fylgi hugmyndir um útgáfuna og gjaldtöku fyrir hana.

Sveitarstjóri