Félagsþjónustan í Laugarási óskar eftir félagsráðgjafa


Félagsþjónustan í Laugarási óskar eftir félagsráðgjafa

Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá Félagsþjónustunni í Laugarási. Um er að ræða 100% starf sem er laust nú þegar. Starfið býður uppá tækifæri til þátttöku í faglegu þróunarstarfi auk þess sem áhersla er lögð á möguleika starfsfólks til að styrkja sig faglega á þessum vettvangi.

Félagsþjónustan er rekin í samstarfi fimm sveitarfélaga í Árnessýslu en þau eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Samstarf er á milli þessara sveitarfélaga auk Hveragerðisbæjar og sveitarfélagsins Ölfus um rekstur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings og er Félagsþjónustan í Laugarási faglegur hluti þeirrar starfsemi. Einn forstöðumaður er yfir faglegu starfi og ráðgjöf Skóla- og velferðarþjónustunnar og félagsþjónustu á svæðinu. Sameiginleg skólaþjónustu- og velferðarnefnd starfar á svæðinu.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

·         Félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð

·         Greining og meðferð barnaverndarmála

·         Þjónusta og ráðgjöf í málefnum aldraðra og málefnum fatlaðs fólks

·         Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

·         Önnur verkefni sem falla undir lög um félagsþjónustu sveitarfélaga

 

Menntunar og hæfniskröfur:

·         Starfsréttindi sem félagsráðgjafi

·         Reynsla af verkefnum á sviði félagsþjónustu og barnaverndar er æskileg

·         Lipurð í mannlegum samskiptum

·         Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi

·         Áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Hergeirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings, ragnheidur@arnesthing.is Umsókn ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi ásamt upplýsingum um meðmælendur berist á netfangið ragnheidur@arnesthing.is  fyrir 31. janúar 2021.   

Laun eru samkvæmt  kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.