Deildarstjóri og leikskólakennari óskast í Bláskógabyggð

Myndverk eftir grunnskólanemendur í Þjórsárskóla
Myndverk eftir grunnskólanemendur í Þjórsárskóla

Leikskólinn Álfaborg i Bláskógabyggð auglýsir eftir deildarstjóra í 100% stöðu, í tímabundna ráðningu, frá 1. desember 2018 með möguleika á fastráðningu vegna stækkunar leikskólans. Einnig óskast leikskólakennari í 100% stöðu í ótímabundna ráðningu, sá þarf að geta hafið störf sem fyrst. Einnig kemur til greina að ráða í hlutastarf. Í leikskólanum starfar samstillt, glaðlynt og metnaðarfullt starfsfólk og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og vellíðan barna. Auk þess er mikil og góð samvinna á milli leikskólans og grunnskólans Bláskógaskóla í Reykholti. Álfaborg er 2ja deilda leikskóli og er staðsettur til bráðabirgða í tveimur húsum í Reykholti, Biskupstungum, þ. á m. með aðalaðsetur í Bláskógaskóla. Nýtt húsnæði leikskóla er í smíðum og er áætlað að taka það í notkun haustið 2019.

  • Vakin er athygli á að álagsgreiðslur eru í boði.
  • Möguleiki er á að útvega leiguhúsnæði í nágrenninu.

Deildarstjóri

Leikskólakennari

Helstu verkefni:

  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á starfi deildarinnar
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna
  • Foreldrasamstarf

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Góð íslensku kunnátta
  • Sjálfstæði frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki í starfi
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Reynsla er æskileg

 

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans
  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun 
  • Góð íslensku kunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki í starfi
  • Ánægja af því að starfa með börnum

 

Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Lieselot Simoen, leikskólastjóri í síma 480 3045. Umsóknir sendast á netfangið lieselot@blaskogabyggd.is

Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 2018.