Dagskrá Upp í Sveit hátíðarhalda 17. – 19. júní 2022

Íslenski fáninn
Íslenski fáninn

Þjóðhátíðardagskrá 17. júní - Brautarholti

Frá kl. 11.30  Pizzavagninn og íssala 9. bekkjar Flúðaskóla verður á  staðnum, ærslabelgurinn uppblásinn og pannavöllurinn klár (bolta þarf þó að koma með sjálfur)

Kl. 12.30        Koddaslagur í sundlauginni – allir hvattir til að taka þátt

Kl. 14.00        Hátíðardagskrá í Félagsheimilinu Brautarholti

                        Fjallkonan

                        Ávarp Séra Óskars

                        Hátíðarræða

                        Tónlistaratriði

                       

Kl. 15.00        Hátíðarkaffi- framreitt af Kvenfélagi Skeiðahrepps

Kl. 21.00        Tónleikar með Ljósbrá og strákunum, félagsheimilinu Árnesi, barinn opinn.

 

 

Upp í sveit !

Laugardagurinn 18. júní

 

   Kl. 11.00         Froðurennibraut við Neslaug, slökkviliðið sér um

                                    froðuna og sundlaugin opin í framhaldinu.

Kl. 11.00 –      Handverksmarkaðurinn Handverk og hám í stóra sal

      18.00         félagsheimilisins Árness. 

                       

 

   Kl. 11.00         Málverkasýning – frá nemum á námskeiði í útimálun, haldið af Guðrúnu Tryggvadóttur listakonu og skálaverði í Hólaskógi.

Kl. 12.00         Hádegisverður í Félagsheimilinu – Þórður grillar eitthvað gott og allir velkomnir. Verð og matseðill verður auglýst síðar.

Kl. 12.00         Þrautir og leikir frá UMFÍ á íþróttavellinum við Árnes, upplögð fjölskylduafþreying.

 

Kl. 14.00         Sveitaleikar – keppt í allskonar, öllu og engu!

Hvetjum alla sem vilja spreyta sig til að smala í lið með 3-5 þátttakendum, gott að hafa breiðan aldur og mismunandi hæfileika þátttakenda. Ný sveitarstjórn ætlar að spreyta sig og þarf verðuga keppinauta!  Hægt að skrá lið fyrir fram hjá Hrönn (hronn@skeidgnup.is)  -eða bara á staðnum þegar kappið færist yfir…

 

Kl. 21.00         Kahoot spurningakeppni í Félagsheimilinu í Árnesi. Til að taka þátt þarf að hafa með sér snjallsíma og æskilegt að kunna á hann. Til að auka möguleika á að vinna er gott að lesa mikið næstu daga og æfa sig að hugsa hratt. Barinn opinn.             Aðeins fyrir 18 ára og eldri

 

  Alla helgina býður Árborg uppá tilboð á ís með dýfu í tilefni hátíðarinnar   

 

 

Upp í sveit !

Sunnudagurinn 19. júní

 

                            Kl. 8.00 –        Morgunverður í félagsheimilinu Árnesi 

                    10.30           í boði Rauðukamba – allir velkomnir!

   

Kl. 11.00         Náttúruskoðun með Bergi náttúrubarni í skóginum í Þjórsárdal og skógarkaffi í boði Skógræktarinnar í skógarskýlinu. Hentar allri fjölskyldunni.

Kl. 15.00         Gönguferð frá Laxárdal að Hlíð með fram Stóru Laxá. Hægt að mæta í Árnes, fyrir framan félagsheimilið til að sameinast í bíla kl. 14.00 Leiðsögumaður er Sigurður Páll                             Ásólfsson leiðsögumaður. Áætlaður tími er 3 klukkustundir. Leiðin er 6-7 km.

 

Kl. 19.00 –      Grillaðu sjálfur!! Sameiginlegt grill íFélagsheimilinu Árnesi, á staðnum verða heit grill og

      21.00      helsti borðbúnaður, drykkir til sölu á barnum. Gestir koma sjálfir með matinn og grilla. Fjölmennum og höfum gaman saman!

 

Kl. 21.00         Varðeldur við Kálfárbakka, austan við gamla reiðvöllinn og fjöldasöngur með trúbador.