Covid bólusetningar 5-11 ára barna í Árnes – og Rangárvallasýslu

Sólin lágt á lofti
Sólin lágt á lofti

Nú verður hætt að boða börn 5-11 ára í Covid bólusetningar. Hægt verður að panta tíma í síma á þinni heilsugæslustöð. Bólusett verður með barnaskammti af bóluefni Pfizer. Hér mega mæta:

  • Allir sem eru óbólusettir og orðnir 5 ára til og með 11 ára. Þeir þurfa að koma í fylgd með forráðamanni (eða þá einhverjum eldri en 18 ára og með umboð frá forráðamönnum).
  • Þeir sem eiga eftir að fá skammt nr. 2. Það þurfa að líða a.m.k 3 vikur milli fyrri og seinni skammts.
  • Ef barn nær 12 ára aldri á milli bólusetningaskammta þarf það að fá fullorðins bóluefni  sem seinni skammt.
  • Þau börn sem hafa fengið Covid-19 mega fá bólusetningu þremur mánuðum eftir veikindi.

 

Munið að skrá barnið  ef um fyrstu bólusetningu er að ræða samkvæmt leiðbeiningum hér að neðan

  https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item48458/Samthykkisferli-fyrir-bolusetningar-5-11-ara-barna-er-virkt-7-1-2022

Bólusetningarstaður:

Þingborg Flóahreppi