Bjarni Ásbjörnsson ráðinn sveitarstjóri tímabundið

Stjórnsýlsn er í Félgasheimilinu Árnesi
Stjórnsýlsn er í Félgasheimilinu Árnesi

Bjarni Hlynur Ásbjörnsson tók tímabundið við starfi sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps um síðustu mánaðamót, mun hann gegna starfinu til 1. október næstkomandi. Kristófer Tómasson veðrur í leyfi á sama tíma. Bjarni hefur víðtæka starfsreynslu. Hann hefur rekið sitt eigið fyrirtæki frá árinu 2004 á sviði ráðgjafar í upplýsingatækni, rekstrar og stefnumótunar. Auk þess hefur Bjarni starfað hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og sem framkvæmdastjóri tveggja nýsköpunar fyrirtækja. Hann var einnig kerfisstjóri Sláturfélags Suðurlands um langt árabil. 

Bjarni er með BS gráðu í tölvunarfræði með áherslu á viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur Bjarni lokið námi frá Endurmenntun Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun og er faglærður leiðsögumaður frá EHÍ. 

Áhugamál Bjarna eru fjölmörg. Útivera og ferðalög hafa ávalt verið ofarlega á lista, ásamt því að fylgjast með tækniþróun að þvî marki sem það er gerlegt í sífellt breytilegum heimi. 

Bjarni og kona hans hafa stundað hrossarækt í smáum stíl í Kílhrauni frá árinu 2004.

Bjarni Hlynur er boðinn velkominn til starfa