Atvinnumálaþing

Yfir Stóru-Laxá
Yfir Stóru-Laxá

Hafin er vinna við atvinnumálastefnu uppsveitanna fjögurra.
Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur standa að þeirri vinnu í samstarfi við sviðsstjóra þróunarsviðs SASS.

Atvinnumálaþing verður haldið á Flúðum fimmtudaginn 6. október kl. 16:00 í félagsheimilinu.
Það markar upphaf þess sem á eftir kemur í stefnumótunarvinnunni.
Þar verða flutt áhugaverð erindi sem varpa ljósi á stöðu mála í atvinnulífi uppsveitanna í dag
annars vegar og hinsvegar horft opnum augum til möguleika framtíðar. 
Þetta er opinn fundur, allir velkomnir og eru íbúar hvattir til þess að taka þátt.