Aðstoðarveitustjóri óskast

Teikning
Teikning

 

Bláskógaveita annast rekstur og framkvæmdir við hita- og vatnsveitu Bláskógabyggðar. Veitan tilheyrir framkvæmda- og veitusviði  Bláskógabyggðar og er hluti af mikilvægum innviðum í sveitarfélaginu.

Bláskógaveita óskar eftir að ráða til sín öflugan einstakling í starf aðstoðarveitustjóra. Næsti yfirmaður aðstoðarveitustjóra er veitustjóri. Um er að ræða 100% starf, en auk þess þarf aðstoðarveitustjóri að vera tilbúinn að sinna útköllum, komi upp bilanir. Vegna þess þarf starfsmaður að vera búsettur á dreifisvæði veitunnar eða í næsta nágrenni. 

Starfssvið aðstoðarveitustjóra:

  • Starfar með yfirmanni að daglegum rekstri veitukerfa.
  • Starfar með yfirmanni að umsjón og viðhaldi veitukerfa.
  • Vinna við nýframkvæmdir við vatnsöflun, veitukerfi og mannvirki þeim tengd.
  • Verkstjórn og stýring verktaka við nýframkvæmdir, viðhald og viðgerðir.
  • Vinna við fjárhagsáætlanir.
  • Ábyrgð á að farið sé eftir viðeigandi reglum um öryggi á vinnustað og að frágangur verka sé með viðeigandi hætti.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.a.m. í málmiðngreinum.
  • Reynsla og þekking á sviði veitna og framkvæmda.
  • Færni til að stjórna og leiðbeina.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Þekking á áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð.
  • Ökuréttindi.
  • Suðuréttindi.
  • Vinnuvélaréttindi æskileg.

 

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem ástæður umsóknar koma fram og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi  Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí næstkomandi.  

Einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.

Umsóknir skulu berast á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristófer Tómasson, sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs Bláskógabyggðar, í síma 480- 3000.

 

Bláskógabyggð er í uppsveitum Árnessýslu í um 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Íbúar eru um  1.200, en auk þess eru um 2.000 sumarhús í sveitarfélaginu. Innviðir eru góðir og hefur talsverð uppbygging átt sér stað á síðustu árum. Í sveitarfélaginu eru vinsælar náttúruperlur og sögufrægir staðir. Atvinnuvegir eru ferðaþjónusta, landbúnaður, þar með talin garðyrkja, og ýmsar þjónustugreinar. Þéttbýlisstaðir eru Reykholt, Laugarvatn og Laugarás.