287 þúsund gestir sóttu viðburði aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands

Gjáin í Þjórsárdal
Gjáin í Þjórsárdal

Út er komin skýrsla afmælisnefndar aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands þar sem m.a. má finna upplýsingar um framkvæmd afmælisársins og yfirlit yfir öll verkefni sem skráð voru á dagskrá afmælisársins.

Helstu niðurstöður:

  • 459 viðburðir voru skráðir á dagskrárvef afmælisársins. Þar af voru 268 styrktir af afmælisnefnd, að undangenginni auglýsingu og valferli, og 191 þátttökuviðburður.
  • 287 þúsund gestir sóttu viðburði sem skráðir voru á dagskrárvef afmælisársins og voru tæplega 15 þúsund einstaklingar virkir þátttakendur í viðburðunum.
  • Áætlanir afmælisnefndar, bæði verkefna- og fjárhagsáætlun, stóðust og skilar nefndin af sér innan fjárheimilda.

Meðfylgjandi er skýrsla afmælisnefndar þar sem m.a. er að  finna yfirlit um þau verkefni sem afmælisnefnd var falið samkvæmt þingsályktun sem og yfirlit yfir öll verkefni sem voru skráð á dagskrárvef afmælisársins.  

Afmælisnefnd þakkar öllum þeim sem stóðu fyrir viðburðum á afmælisárinu sem og þeim sem sóttu þá fjölbreyttu viðburði sem fram fóru og áttu stóran þátt í að gera afmælisárið eftirminnilegt. Með virkri þátttöku stofnana, félagasamtaka,  sveitarfélaga, einstaklinga og fyrirtækja er óhætt að segja að afmælisárið hafi tekist vel og byggir það ekki síst á frumkvæði, hugmyndaauðgi og þátttöku landsmanna.

Nánari upplýsingar veita Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri (862 2277), ragnheidurjona@fullveldi1918.is, og Einar K. Guðfinnsson, formaður (892 7628), ekg@ekg.is.

Mynd með fréttatilkynningu:  Einar K. Guðfinnsson formaður afmælisnefndar og Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri afhentu forsætisráðherra skýrslu afmælisnefndar. 

Frá vinstri: Ragnhildur Arnljótsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir