Velferðarþjónustan óskar eftir starfsmanni við stuðningsþjónustu og félagslega heimaþjónustu

Minnisvarði um Sigurjón Rist
Minnisvarði um Sigurjón Rist

 Velferðarþjónusta Árnesþings í Laugarási óskar eftir starfsmanni við stuðningsþjónustu / félagslega heimaþjónustu.

Um er að ræða allt að 80 % stöðu, viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Greitt er samkvæmt kjarasamningi Félags opinbera starfsmanna á suðurlandi.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

▪ Almenn þrif
▪ Aðstoð við persónulega umhirðu
▪ Veita félagslegan stuðning og hvatningu
▪ Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustuþega
▪ Hreint sakavottorð

Helstu hæfniskröfur:

• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Hæfni til að starfa sjálfstætt
• Skilyrði að umsækjandi hafi reynslu af almennum heimilisstörfum
• Að vera 20 ára eða eldri og hafa bíl til umráða.
• Mælst er til að viðkomandi geti talað íslensku

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Símonardóttir í síma 480-1180
eða sendið fyrirspurn í tölvupósti á sigrun@laugaras.is