Unglingavinna sveitarfélagsins

Vinnuskólinn
Vinnuskólinn

Ungmennum, með lögheimili í Skeiða-og Gnúpverjahreppi, sem fædd eru 2008-2009 gefst kostur á að starfa í vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Vinnuskólinn hefst mánudaginn 6. júní og stendur til og með 3. ágúst. Unnið er fjóra daga í hverri viku, mánudaga-fimmtudaga frá kl. 8 – 14. Miðað er við að hvert barn taki viku frí, samfleytt, á tímabilinu. Heitur matur er framreiddur í hádeginu en koma þarf með nesti á kaffitíma fyrir hádegi. Skráningarfrestur er til 15. maí. Skráning þarf að berast á netfangið sylviakaren@skeidgnup.is Hámarksfjöldi starfsfólks í vinnuskólanum eru 8 manns í einu. Ef fjöldi starfsfólks fer yfir þann fjölda verður starfstíminn skipulagður með það í huga.