Tiltektardagur hjá íbúum Brautarholts

Íbúar í Brautarholti sem tóku þátt í tiltektardegi
Íbúar í Brautarholti sem tóku þátt í tiltektardegi

Þriðjudaginn 21 apríl tóku íbúar í Brautarholti sig til, skipulögðu og héldu tiltektardag í Brautarholti.

Mættu þar saman börn og fullorðnir og gengu um hverfið með það í huga að gera umhverfi sitt snyrtilegt. Var tínt upp alls konar rusl sem kom í ljós og kerra fyllt. 

Að lokum grilluðu þau pylsur saman. 

Þetta er frábært framtak hjá íbúum í Brautarholti og algjörlega til fyrirmyndar.

Takk fyrir kæru íbúar.