Tilboð í verkið Vallarbraut 2022

Mynd af framkvæmdum - en myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint
Mynd af framkvæmdum - en myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Um er að ræða vinnu við gatnagerð á nýrri götu, Vallarbraut, í Brautarholti.

Átta tilboð bárust í verkið. Ólafsvellir ehf. átti lægsta boðið eða 61.764.750 kr.

Önnur tilboð voru:

Fögrusteinar ehf. – 64.099.300 kr.
Arnon ehf. – 66.473.054 kr.
Stórverk ehf – 73.499.200 kr.
Egill Guðjóns ehf. – 76.752.300 kr.
Nesey ehf. – 79.000.000 kr.
Auðverk ehf, – 86.668.000 kr.
JG vélar ehf. – 114.480.200 kr.

Kostnaðaráætlun verksins nam 63.736.500 kr. og eru verklok 15. júlí 2023.