Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ESB, sem fer fram hinn 29. ágúst nk., liggur frammi fyrir almenningi til sýnis á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins fram til kjördags.
Opið er á skrifstofu sveitarfélagsins mánudaga - fimmtudaga kl 9-12 og 13-14 og föstudaga kl 9-12.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst hjá sýslumönnum 27. júlí sl.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Suðurlandi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 fer fram sem hér segir:
-
Aðalskrifstofan á Selfossi, Hörðuvöllum 1, 800 Selfossi.
27. júlí - 14. ágúst, mánudaga til föstudags, 9:00 - 15:00.
17. - 21. ágúst, kl. 9:00 - 17:00.
Laugardaginn 22. ágúst, kl. 10:00 - 12:00.
24. ágúst - 27. ágúst, kl. 9:00 - 18:00.
28. ágúst, kl. 9:00 - 20:00.
Kjördag, 29. ágúst, kl. 11:00 - 15:00.
Frá og með 17. ágúst verður einnig hægt að kjósa á eftirtöldum stöðum:
- Á skrifstofu Hveragerðisbæjar við Breiðumörk, Hveragerði.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 - 15:00 og föstudaga kl. 9:00 - 12:00.
-
Á skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 - 16:00, föstudaga kl. 9:00 - 12:00.
-
Á skrifstofu Bláskógabyggðar 2. hæð í Aratungu, Reykholti.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30 - 16:00, föstudaga kl. 8:30 - 12:30.
Aðra kjörstaði vegna utan kjörfundar atkvæða er hægt að sjá inn á vef sýslumanna