Við Tjarnarver á Gnúpverjaafrétti
Tæknisvið Uppsveita er sameiginlegt svið fimm sveitarfélaga en þau eru Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógarbyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur. Verkefni tæknisviðsins eru margvísleg en þar á meðal er unnið að vatns-, hita, og fráveitumálum, gatnagerð, viðhald og nýbyggingar húsa, sorpmálum, vinnslu úrgangs og fleira sem til fellur. Einnig koma starfsmenn sviðsins að afleysingum hjá Skipulags- og byggingafulltrúaembætti Uppsveita.
Starfssvið :
-
Verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála á sviði umhverfis og gatnakerfis
-
Ábyrgð á að framkvæmd verkefna sé í samræmi við lög og reglur
-
Afleysingar hjá Skipulags- og byggingafulltrúaembætti Uppsveita.
-
Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka
-
Vinna við fráveitumál
-
Vinna við landupplýsinga grunn
-
Vinna við GPS landmælingar
-
Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Byggingafræðingur -tæknifræðingur eða -verkfræðingur eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af verkefnastjórnun
-
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu
-
Æskilegt að viðkomandi hafi starfsreynslu sem byggingafulltrúi.
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
-
Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaðar
Frekari upplýsingar um starfið veitir Börkur Brynjarsson eða Ingibjörg Harðardóttir í síma 480 5500 á skrifstofutíma.
Umsóknum skal fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsókn þarf að berast fyrir 31. janúar n.k. á netfangið borkur@gogg.is eða sveitarstjori@gogg.is