Skeiða- og Gnúpverjahreppur leggur sitt af mörkum til stöðugleika

Dynkur í Þjórsá
Dynkur í Þjórsá

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps lýsir yfir vilja sínum til að leggja sitt af mörkum við að halda aftur af verðbólgu og samþykkir með fimm atkvæðum að engin gjaldskrá hjá sveitarfélaginu hækki umfram 2,5% á árinu 2027 og mun leggja það til grundvallar við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Ákvörðunin er í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika og haldi gjaldskrárhækkunum í hófi. Sveitarstjórn hefur jafnframt tekið undir áskoranir aðila vinnumarkaðarins um sameiginlegt átak sveitarfélaga, ríkis og atvinnulífs til að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.

Með ákvörðuninni vill sveitarstjórn stuðla að auknum fyrirsjáanleika fyrir heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu og leggja sitt af mörkum til að draga úr kostnaðarhækkunum. Jafnframt verður áfram lögð áhersla á að standa vörð um góða og trausta þjónustu sveitarfélagsins.