- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Veðrið í vetur hefur verið með eindæmum gott, þrátt fyrir smá snjókomu síðustu daga og nú finnum við áþreifanlega fyrir því hversu hratt dagurinn lengist. Það hefur verið virkilega ánægjulegt að fylgjast með framgangi framkvæmdanna við byggingu íþróttamiðstöðvarinnar í Árnesi síðustu mánuði. Vinna við loftræstikerfið í íþróttasalnum klárast í þessum mánuði ásamt því að rakakerfi verður sett upp í salinn. Á fyrsta vinnudegi eftir páska hefst lagning á parketinu í íþróttasalnum og má gera ráð fyrir að íþróttasalurinn verði tilbúinn í maí.
Verið er að sparsla veggi í nýjum tækjasal og er búið að panta lyftingatækin sem verða sett upp í salnum. Í tækjasalnum eru einnig tvö sérrými með aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun, nudd eða aðra þjónustu.
Múrvinna er í fullum gangi í búningsklefum og styttist í að flísalögn hefjist þar. Í þessari viku hefst vinna við að setja upp veggi í kringum nýtt eldhús þar sem framleiddur verður matur fyrir skólana okkar og fyrir annað starfsfólk sveitarfélagsins. Einnig er verið að leggja lokahönd á lista yfir þann tækjabúnað sem verður í eldhúsinu en eldhúsið er miðað við að geta framleitt mat fyrir 300 manns á dag. Í húsinu verður stór matsalur sem rúmar vel yfir 100 manns í sæti í einu.
Íþróttamiðstöðin verður tekin í notkun áður en skólastarf hefst í haust en þá verður Þjórsárskóli í fyrsta sinn heildstæður grunnskóli 1-10. bekk og ekki hægt að segja annað en að aðstaðan til skóla-, frístunda- og íþróttastarfs verður eins og best getur orðið.
Það er ánægjulegt að sjá hversu hratt íbúum er að fjölga í sveitarfélaginu, þá sérstaklega þegar kemur að yngra fólki. Í byrjun þessa kjörtímabils þá hafði um árabil verið um 65-70 börn á grunnskólaaldri í sveitarfélaginu. Nú hefur íbúum sveitarfélagsins fjölgað á kjörtímabilinu úr 570 upp í 683. Það sem er sérstaklega ánægjulegt að sjá er að fyrstu 10 árgangarnir, þ.e.a.s. börn á aldrinum 0-9 ára eru samkvæmt þjóðskrá í dag orðin 97. Ekki er hægt að sjá annað en að unga fólkið hafi trú á framtíðinni í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og er nokkuð ljóst að mikil fjölgun verður í Þjórsárskóla á næstu árum. Það kæmi mér ekki á óvart að við þurfum að huga að stækkun Þjórsárskóla strax á næsta kjörtímabili.
Á fundi sveitarstjórnar þann 18. mars næstkomandi verður á dagskrá framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar, sem nú kemur til sveitarstjórnar í þriðja sinn. Einnig styttist í að sveitarstjórn gefi út framkvæmdaleyfi til að hefja framkvæmdir við Búðafossveg en það má með sanni segja að allir hafi beðið lengi eftir því að þær framkvæmdir hefjist. Framkvæmdir við Fjallaböðin hafa verið á fullum krafti í vetur og þar starfa núna um 70 manns á framkvæmdasvæðinu og mun þeim fjölga þegar nær dregur sumri. Einnig verða tilboð opnuð í þessum mánuði vegna byggingar Gestastofunnar við Selhöfða þar sem gera má ráð fyrir að framkvæmdir fari í gang strax eftir páska.
Allt þetta kjörtímabil höfum við barist fyrir því að sveitarfélög með orkumannvirki njóti sanngjarns ávinnings af þeirri orkuvinnslu sem á sér stað. Við höfum sýnt fram á það að takmarkaður ávinningur á sér stað í nærumhverfi orkuvinnslu á meðan allur efnahagslegur ávinningur kemur fram þar sem orkan er notuð. Nú bendir allt til þess að árangur sé að nást í þessari baráttu en í samráðsgátt stjórnvalda er nú búið í kynningu frumvarp til laga um að afnema undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Innviðaráðherra áformar að mæla fyrir málinu á núverandi þingi og bindum við vonir við að málið verði að lögum á núverandi þingi. Hægt er að lesa um málið í samráðsgáttinni á eftirfarandi slóð ásamt því að lesa umsagnir sveitarfélaga og orkufyrirtækjanna:
https://island.is/samradsgatt/mal/4198
Fleira er það ekki að sinni.
Haraldur Þór Jónsson
Oddviti