Nýr íbúðakjarni að Nauthaga 2 í Árborg

Tekin var í dag fyrsta skóflustungan að íbúakjarna fyrir fatlað fólk. Að íbúðakjarnanum standa Bergrisinn bs. og Arnardrangur; húsnæðissjálfseignarstofnun.

Bergrisinn bs. er byggðarsamlag 13 sveitarfélaga á suðurlandi sem vinna þannig saman að málefnum fatlaðs fólks.  Málaflokkur fatlaðs fólks var fluttur frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Frá þeim tíma hefur ekki verið byggt húsnæði fyrir fatlað fólk í umdæmi Bergrisans en nýjasti íbúðakjarninn- Birkimörk, var byggður árið 2007. 

Það er mikilvægt að fólk sem vill búa á eigin heimili geti látið þann draum rætast. Þörfin á svæðinu er mikil og því fagnaðarefni að vinna sé komin af stað með bygginu sex íbúða kjarna sem mun veita sértæka þjónustu samræmi við kröfur sem gerðar eru í lögum og reglugerðum.

Undirbúningur þessa verkefnis hefur verið í gangi frá árinu 2018 og margar hendur komið að því en segja má að verkefnið hafi að fullu farið af stað árið 2020 með greiningu á lóðarkostum og grunn þarfagreiningu. Í kjölfarið var unnin ítarleg þarfagreining þar sem fjöldi hagsmunaaðila kom að en í slíku ferli þarf að vanda mjög vel til verka enda húsnæðið hannað út frá ákveðnum þörfum sem miða að því að íbúar lifi sjálfstæðu lífi.

Þeir aðilar sem hafa komið að verkefninu eru stjórn Bergrisans, byggingarnefnd verkefnisins og matsnefnd, fulltrúar notendaráðs fatlaðs fólks, fulltrúar forstöðumanna og ráðgjafa. Að auki komu að ferlinu ytri ráðgjafar frá Verkís, VSB og ÁS styrktarfélagi sem hefur langa og mikla reynslu af byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk ásamt HLH ráðgjöf.

Ákveðið var að fara í alútboð og bárust tvö tilboð í verkið. Matsnefnd um verkefnið fjallaði um tilboðin eftir fyrirframgefnum viðmiðum og varð niðurstaðan sú að óska eftir samvinnu við fyrirtækið Mineral ehf. Hafa aðilar í kjölfarið átt í samningaviðræðum og samvinnu um hönnun hússins.

Nú er miðað við að tilvonandi íbúar getir flutt inn í Nauthagann í lok janúar 2024.