- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í níunda sinn þann 11. mars við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói. Myndlistarráð stendur að verðlaununum sem hafa það að meginmarkmiði að vekja athygli á því sem vel var gert á sviði myndlistar á liðnu ári.
Aðalverðlaunin féllu Finnboga Péturssyni í skaut fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.
Finnbogi nam við Myndlista- og handíðaskólann og Jan Van Eyck-akademíuna í Hollandi. Hann hefur markað sér sérstöðu með tæknilegum rýmisverkum sem gagntaka skynjun sjónar og heyrnar í tilkomumiklum einfaldleika. Á síðustu árum hefur Finnbogi opnað á tilfinningar í verkunum eins og í Skjálfta.
Hugmyndina að verkinu vann hann með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis en áður en hugmyndin var fullunnin lést Ragnar. Til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar.
Það er mat dómnefndar að Skjálfti kjarni leiðarstef annarra verka Finnboga, sem hafa verið innblástur listamanna, vakið áhuga fræðimanna og sýningargesta. Sýningin hafi verið látlaus og umlukið skilningarvit áhorfenda. Innsetning í rökkvuðu rými var samsett af spegildúk á vegg, ljós úr lofti, duftker á stöpli og skjálftabylgjur. Sýningin vakti óvæntar tilfinningar, vakti hugleiðingar um kraft náttúrunnar, ódauðleika, hverfulleika og hvað tekur við þegar dauðinn knýr dyra.
Sjá nánar á:
Þessi hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin 2026 - RÚV.is