Laust starf ritara hjá UTU

Teikning og skipulag
Teikning og skipulag

Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli.

 

Starfs- og ábyrgðarsvið:

• Móttaka gagna og skjalaumsjón

• Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti

• Samskipti og bréfaskrif við opinberar stofnanir

• Reikningagerð

• Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Menntun sem nýtist í starfi

• Rík þjónustulund

• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum

• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti

• Góð tölvukunnátta í öllum helstu forritum s.s. Outlook, Word og Excel

• Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er kostur

• Þekking á ONESystem umsjónarkerfinu er kostur

 

Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóri í síma 480-5550 eða á netfanginu johannes@utu.is

Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á þetta sama netfang.

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 22. ágúst n.k.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita (UTU) er sameiginleg skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa fimm sveitarfélaga í Árnessýslu og Ásahrepps í Rangárvallasýslu. Hjá embættinu starfa tíu manns. Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni. Mörg sumarhús eru á starfssvæði embættisins og einkennir það starfsemi UTU bs. umfram önnur skipulags- og byggingarfulltrúaembætti á landinu. Heimasíða embættisins er www.utu.is