- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. leitar eftir verkefnastjóra í stoðteymi með áherslu á mannvirkjamál. Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Við leitum af einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á byggingarmálum og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Verkefnastjóri í stoðteymi mun starfa í nánu samstarfi við byggingarfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Menntunar- og hæfnikröfur:
Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, möguleiki er á fjarvinnu eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Jónsdóttir, – nanna@utu.is – 480-5560
Umsókn skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 30. desember nk.
Nánari upplýsingar á heimasíðu UTU.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. | Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra í mannvirkjamálum