Kerlingarfjöll - opinn fundur um drög að stjórnunar- og verndaráætlun

Náttúruverndarstofnun, ásamt samstarfshópi, hefur unnið drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið Kerlingarfjöll

Stofnunin boðar til opins kynningarfundar um drögin í Félagsheimilinu á Flúðum, Huppusal bókasafnsins þann 4. júní kl. 17:00.

Meðal umfjöllunarefna eru sérreglur um mannvirkjagerð, landnotkun og umferð á svæðinu. Frestur til að skila inn athugasemdum hefur verið framlengdur til 10. júní nk.

Dagskrá fundarins er:

  • Stjórnunar- og verndaráætlun Kerlingarfjalla, Sif J. Ástudóttir og Valdimar Kristjánsson Náttúruverndarstofnun.
    • Spurningar og umræður

Öll velkomin, heitt á könnunni.

Hlekkur á viðburð á facebook

Frekari upplýsingar um drögin eru að finna á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar: https://www.nattura.is/.../drog-ad-stjornunar-og...