Kaffihylki úr áli verða endurunnin

Mynd af kaffihylkjum
Mynd af kaffihylkjum

Þar sem Íslenska Gámafélagið hefur nú tekið í gagnið nýja vinnslulínu fyrir kaffihylki úr áli, getum við boðið íbúum upp á að skila þeim sérstaklega til endurvinnslu. Einungis má skila hylkjum úr áli og þeim þarf að skila í glærum poka. Hægt er að skila þeim af sér á gámasvæðinu í Árnesi, en einnig er í boði að skilja lokaða poka með kaffihylkjum eftir í skápunum góðu, þar sem við skilum af okkur fullum fötum að lífrænum úrgangi. 

Frekari upplýsingar um endurvinnslu kaffihylkja má finna á heimasíðu Íslenska Gámafélagsins:  Endurvinnsla kaffihylkja | Íslenska gámafélagið