Íbúakönnun um atvinnumál í uppsveitum

Merki uppsveitanna
Merki uppsveitanna

Nú stendur yfir vinna við að móta sameiginlega atvinnumálastefnu sveitarfélaganna í Uppsveitum Árnessýslu; Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og
Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Íbúum gefst tækifæri til að taka þátt í að móta áherslur í stefnunni með því að svara rafrænni könnun. Könnunin er aðgengileg íbúum á vefsíðum sveitarfélaganna fjögurra til áramóta. Könnunin er nafnlaus og órekjanleg. Íbúar eru hvattir til að taka þátt, það tekur ekki langan tíma.

Smellið á þessa slóð: https://www.surveymonkey.com/r/atvinnumaluppsveita