- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Í tilefni síðasta fundar sveitarstjórnar fyrir kosningar þar sem sveitarstjórn samþykkir ársreikning fyrir árið 2025 er boðað til íbúafundar í Árnesi miðvikudaginn 6. maí kl. 19:00. Þar mun endurskoðandi sveitarfélagsins, Haraldur Örn Reynisson frá KPMG, kynna ársreikninginn og svara spurningum frá íbúum varðandi fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Á undan íbúafundinum, milli 17:00-19:00 verður opið hús í nýja verknámshúsinu og íþróttamiðstöðinni. Öllum gefst því tækifæri til að koma og skoða húsin. Verknámshúsið var tekið í notkun í lok síðasta árs og íþróttamiðstöðin verður tekin í notkun áður en Þjórsárskóli hefst í lok sumars.
Öll velkomin.