Gámasvæðið lokað á aðfangadag og gamlársdag

Vetrarsól
Vetrarsól

Síðustu tvo laugardaga mánaðarins ber einmitt upp á aðfangadag jóla, 24. desember og gamlársdag 31. desember. Þessa tvo daga verður gámasvæðið bara lokað. Við minnum hinsvegar á að svæðið er opið á miðvikudögum kl. 14 - 17 og verður opið alla miðvikudaga mánaðarins.