Heilbrigðisstofnun Suðurlands býður íbúum í Uppvseitum upp á stafræna læknisþjónustu í samstarfi við Fjarlækningar. Markmiðið er að auka aðgengi að læknisþjónustu, stytta biðtíma og gera fólki kleift að fá úrlausn algengra og afmarkaðra erinda án þess að þurfa að mæta á heilsugæslustöð.
Hvernig virkar þjónustan?
Erindi er sent inn í gegnum heimasíðu HSU, sem vísar áfram í örugga sjúklingagátt Fjarlækninga. Þar svarar notandinn markvissum spurningum, sambærilegum þeim sem læknir myndi spyrja í hefðbundnu viðtali. Læknir fer yfir svörin og hefur samband innan tveggja klukkustunda á opnunartíma.
Engin biðstofa og ekkert ferðalag
Farðu inn á heimasíðu HSU, sendu inn erindið þitt hvenær sem er á milli kl. 10 og 22, og læknir svarar þér innan tveggja klukkustunda.
Fyrir hverja?
Þjónustan er ætluð skjólstæðingum HSU 18 ára og eldri og hentar vel fyrir einföld og afmörkuð erindi sem krefjast ekki skoðunar á staðnum. Hún kemur ekki í stað heilsugæslunnar heldur er viðbót við hana, og með því að leysa einfaldari mál stafrænt skapast meira svigrúm fyrir heilsugæsluna til að sinna þeim sem þurfa umfangsmeiri þjónustu.
Öryggi í fyrirrúmi
Ef svör benda til alvarlegra einkenna er viðkomandi
strax vísað í viðeigandi úrræði innan heilbrigðiskerfisins.
Heilsugæsla heima í stofu.
Skannaðu kóðann se, fylgir fréttinni og fáðu lausn erinda þinna úr sófanum.