Brjóstamiðstöð Landspítala mun vera með brjóstaskimun á Selfossi

Brjóstamiðstöð Landspítala mun vera með brjóstaskimun á Selfossi 2.-12.nóv, þar sem geislafræðingar frá miðstöðinni koma í heimabyggð til að veita þjónustuna.

Brjóstaskimun er mikilvægur þáttur í forvörnum og getur skipt miklu máli fyrir snemmgreiningu brjóstakrabbameins.

Allar konur 40 ára og eldri eru velkomnar í skimun á tveggja ára fresti.

Hægt er að bóka tíma með því að fylla út formið á þessari síðu

https://island.is/s/landspitali/brjostamidstod-landspitala/brjostaskimun

Senda tölvupóst á brjostaskimun@landspitali.is

Eða hringja í síma Brjóstamiðstöðvar s:543 9560
Símatími: virka daga frá 9 - 15:30