Skólanefndarfundur nr. 04
Gunnskólamál
10. nóvember kl.15:00 í Árnesi.
Mættir voru: Kjartan Ágústsson. Meike Witt, Kristófer Tómasson, Bolette Höeg Koch, Sigurlaug Ósk Reimarsdóttir, Bjarni Másson, Ingvar Hjálmarsson, Anna Þórný Sigfúsdóttir, Ásmundur Lárusson, forfallaðist.
-
Fjárhagsáætlun Þjórsárskóla2015 lögð fram og samþykkt.
-
Bolette segir frá heimsókn heilbrigðiseftirlitsins, hvað þarf að betrumbæta.
3. Skólinn á von á að fá grænfánann afhentan, tímasetning 25. nóvember. Þá verður skrifað undir nýjan samning við Skógrækt ríkisins og Lesið í skóginn.
4. Bókasafnið í skólanum er nýkomið í gagnið, staðsett í kjallara skólans. Til stendurað fjárfesta bækur í ákveðnu magni. Bækur fengust einnig gefins. Ætluniner að halda utan um safnið. Safnvörður er Árdís Jónsdóttir.
Næsti skólanefndarfundur hefur veriðákveðinn9. febrúar kl. 15:30 í Brautarholti.
Fundi slitið kl. 16:00