3. fundur skólanefndar um leikskólamál Leikskólans Leikholts, haldinn í Leikholti 12 febrúar 2019
Dagskrá
-
Öryggisreglur í leikskólum, vegna öryggi barna og slysavarna.
Leikskólastjóri tók til máls. Sveitarfélagið hefur ekki gefið út öryggisreglur. Leikskólastjóri greindi frá að unnin hefur verið í leikskólanum, rýmingaráætlun, viðbragðsáætlun, eineltisáætlun og í vinnslu er áfallaáætlun.
-
Börn og starfsfólk.
Leikskólastjóri greindi frá því að börn í leikskólanum væru 27. Samtals eru 13 manns starfandi í 7,8 stöðugildum. Væntanleg eru þrjú börn á næstu þremur mánuðum. Börn fara í grunnskóla næsta haust. Útlit er fyrir að börn verði 36 í leikskólanum í byrjun árs 2020. Að sögn leikskólastjóra gengur starfsmönnum vel að anna verkefnum. Nokkur umræða var um möguleika á nýtingu húsnæðis leikskólans.
-
Fréttir af Lettlandsferð og samstarfsverkefni á vegum Landverndar
Leikskólastjóri greindi frá ferð sem hún fór í til Lettlands. Var um að ræða námsferð sem styrkt var af Erasmus. Farið var á ráðstefnu þar sem meðal annars var lögð áhersla á að fjalla um lífbreytileika. Heimsóttir voru skólar á svæðinu og verkefni unnin. Að sögn Leikskólastjóra var ferðin fróðleg og gagnleg í alla staði
-
Mál til kynningar. Tvö bréf
-
Áform um breytingar um menntun og ráðningu.
-
Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum ( til skólasamfélagsins)
-
Önnur mál
-
Leikskólastjóri lagði fram form að eftirgreindum skjölum sem notuð verða í Leikholti : Persónuverndaryfirlýsing, Dvalarsamningur, upplýst samþykki foreldra, samþykki vegna ljósmynda og myndmannsupptöku. Upplýst samþykki foreldra fyrir myndbirtingu og öðrum upplýsingum á lokaðri facebooksíðu Leiksholts. Öryggisblað með grunnupplýsingum um barn vegna slysa og bráðaveikinda. Miðun upplýsinga milli leikskóla og milli leik- og grunnskóla.
Formin voru unnin í samráði við persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 17:00 Næsti fundur verður haldinn í Þjórsárskóla mánudaginn 8 apríl nk. kl 16:00