- Upprekstur
Ákveðið að fara og skoða afréttinn í næstu viku og ákveða upprekstrardag. Helga heyrir í Sigþrúði Jónsdóttur sem mun taka út afréttinn fyrir hönd Landgræðslunar.
- Girðingar
Arnór var búinn að tala við Bjarna Másson um að yfirfara girðingar. Arnór athugar hvort það sé búið. Það þarf að yfirfara sleppigerðið í Skúmstungum og útbúa þar gerði sem nota á í eftirsafni.
- Breytingar á fjallskilum
Breytingar á fjallskilum verða ekki gerðar í haust en við stefnum að því næsta haust. Breytingarnar fælust í því að hver sauðfjárbóndi skaffi smala í hlutfalli við fjölda fjár á fjalli. Breytingartillagan þarf að fara fyrir sveitastjórn.
- Akstur af fjalli
Ákveðið að stefna að því að keyra féð heim í haust úr Hólaskógi og frá Fossá. Kostnaður við akstur myndi leggjast ofan á fjallskil en hægt væri að vinna upp í þau. Stefnum að því að keyra í haust til reynslu og meta svo stöðuna aftur á næsta ári.
- Framkvæmdir
- Ekki búin að fá úr fjallvegasjóði
- Líklega verður farið í verkefni framarlega á afréttinum. Hefla og setja ræsi.
- Arnór talar við Strá ehf.
- Bíðum eftir að skipulagið fari í gegn svo við getum pantað braggana í Bjarnalækjabotna og Gljúfurleit. Markmið að panta þá og steypa sökklana í haust.
- Klósetthúsið í Gljúfurleit þarf að fara upp í sumar. Markmið að gera það tilbúið í byggð í júlí og koma því fyrir í ágúst.
- Ákveðum að búa til hóp á facebook með sjálfboðaliðum sem væru til í að aðstoða við allskonar verkefni, girðingar, málningavinnu og fleira. Helga sér um að útbúa lista yfir sjálfboðaliða og bjóða í hópinn.
Fundi slitið kl. 22.00
Næsti fundur áætlaður í lok júlí 2023