Afréttarmálanefnd Gnúpverja

2. fundur 24. ágúst 2018 kl. 14:00
Nefndarmenn
  • Fundinn 24. ágúst kl. 14:00 sátu Lilja Loftsdóttir
  • Arnór Hans Þrándarson
  • Gylfi  Sigríðarson
  • Kristófer A Tómasson
  •   Skafti Bjarnason
  • Guðmundur Árnason
  • Fundur hófst aftur þriðjudagskvöld 28.ágúst kl. 20:00. þennann hluta fundarins sátu Lilja Loftsdóttir
  • Arnór Hans Þrándarson
  • Gylfi Sigríðarson
  • Kristófer A Tómasson 

2. fundur Afréttarmálanefndar Gnúpverja haldinn föstudaginn 24.ágúst 2018 kl 14:00.

Afráðið er að Guðmundur Árnason mun stjórna fjallsafninu og réttum í haust. Arnór Hans Þrándarson verður foringi í Eftirsafni.

  • Farið yfir niðurjöfnun fjallskila.  Enn vantar tvo fjallmenn í fjallsafn og tvo í eftirsafn.
  • Rætt hvort Sveitarfélagið sé tilbúið að bæta við fjárframlagi til vegavinnu á afréttinum í viðbót við það sem kom úr fjallvegasjóði. Tekið vel í það. Búið er að fá þá feðga í Sandlækjarkoti til að fara í vegavinnu á afréttinum á næstunni. Setja á niður ræsi í veginn upp með Innri Skúmstungnaánni  og bæta í ofaníburði þar. Tína grjót og laga veginn á köflum  inn Löngöldu og Lönguhlíð. Fjárframlag kom úr Fjallvegasjóði  800 þúsund.

Fundi frestað 15:30 til þriðjudagskvölds 28.ágúst  vegna heyanna hjá stjórnarmönnum.

Fundur hófst aftur þriðjudagskvöld 28.ágúst kl. 20:00 þennann hluta fundarins sátu Lilja Loftsdóttir, Arnór Hans Þrándarson, Gylfi Sigríðarson og Kristófer A Tómasson .

  • Niðurjöfnun fjallskila. Búið er að manna allar leitir.
  • Álögð fjallskil. Gerð tillaga að fjárhagsáætlun fjallskila fyrir 2018 sjá fylgiskjal.
  • Yfirfarin þau verkefni sem þurfa að vinnast fyrir réttir. Yfirfara grindur og  girðingar við réttina, safngirðingu við Ásólfsstaði, hestagirðingu í Hólaskógi. Sjá til þess að auglýstar verð tafir á umferð vegna fjárrekstra daginn fyrir og á réttardaginn.
  • Vinna í Tjarnarveri.Fara á innúr næstu helgi og klára vinnuna við húsið og hesthúsið. Jafnframt að rífa niður og ganga frá gamla húsinu. Fjórir fara af stað innúr á fimmtudagskvöld og einhverjir á föstudag. Þeir sem hafa tekið þátt í framkvæmdinni við nýja húsið hefur verið boðið að koma innúr á laugardag og fagna formlegum lokum á framkvæmdunum.

Fundi slitið 22:00 fundarritari Lilja Loftsdóttir