Ný slökkvistöð tekin í notkun við Árnes

Föstudagurinn 19 janúar var merkur dagur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en ný slökkvistöð þá tekin í notkun við Árnes.

Slökkvistöðin er hin glæsilegasta og vel útbúin. Í stöðinni er meðal annars aðstaða til kennslu og þjálfunar. Mikið framfaraskref í brunavörnum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er tekið með þessum merka áfanga. Virkjanamannvirki á Þjórsár- og Tungnársvæðinu munu jafnframt njóta góðs af slökkvistöðinni og tilheyrandi liði og búnaði. Húsnæðið sem hýsir slökkvistöðina er hluti af stærra iðnaðarhúsnæði. Í öðrum hlutum þess mun verða starfrækt kjötvinnsla og áhaldahús hreppsins. Auk þess verður Landstólpi ehf með hluta af sinni starfsemi þar. Búnaðarfélag Gnúpverja er byggingaraðili hússins.  Landstólpi ehf sá um byggingu þess.

Á meðfylgjandi mynd má sjá frá vinstri : Arnór Hans Þrándarson formann Búnaðarfélags Gnúpverja, Pétur Pétursson slökkviliðsstjóra og Ara Thorarensen formann stjórnar Brunavarna Árnessýslu.